Vængjalaus Lyrics & Tabs by Sálin Hans Jóns Míns

Vængjalaus

guitar chords lyrics

Sálin Hans Jóns Míns

Album : Compilation icelandic PlayStop

Komdu með mér til að kanna heiminn,
kreistum appelsínur, finnum keiminn.
Tínum döðlur, tökum daginn snemm'í Róm.

Kljúfum loftið eins og Concorde-þota,
komum niður, finnum töfrasprota.
Göldrum upp'úr hatti alveg nýjan hljóm.
Síðan sýni ég þér
sögubækur og kver,
skýjaborgir og álfastein.
Við getum flögrað um
og farið hvert á land sem er.
Fljúgum í draumi vængjalaus.
Taktu utan um mig tveimur höndum.
Teygum regnið yfir silfursöndum.
Höldum striki, heyrum vindsins enduróm.

Taktu utan um mig tveimur höndum.
Teygum regnið yfir silfursöndum.
Höldum striki, heyrum vindsins enduróm.
Svífum upp'á móti sólarbjarma,
Stefnum áfram uns við finnum varma.
Leitum uppi fögur tré og lótusblóm.
Síðan sýni ég þér
sögueyjar og sker,
fornar slóðir og meira til.
Við getum flögrað um
og farið hvert á land sem er.
Fljúgum í draumi vængjalaus.
Ó.
Yfir regnbogann og undir aftur.
Engin takmörk eru fyrir því hve lengi
eða hve langt þetta flug getur orðið
því þetta er minn einkadraumur.
Draumur.
Síðan sýni ég þér
sögubækur og kver,
skýjaborgir og álfastein.
Við getum flögrað um
og farið hvert á land sem er.
Fljúgum í draumi vængjalaus.
Fljúgum í draumi vængjalaus.
Fljúgum í draumi.
Fljúgum í draumi.
Fljúgum í draumi vængjalaus.

Like us on Facebook.....
-> Loading Time :0.0068 sec