Fram á nótt Lyrics & Tabs by Nýdönsk

Fram á nótt

guitar chords lyrics

Nýdönsk

Album : KirsuberPlayStop

Börn og aðrir minna þroskaðir menn
fóru að gramsa í mínum einkamálum
þegar ég var óharðnaður enn

og átti erfitt með að miðla málum.
Þú varðst að ganga rekinn í kút
til þess að verða ei fyrir aðkasti mannanna.
Þó að þú lítir alls ekki út fyrir að lifa
eftir lögum þess bannaða.
Hvernig kemst ég inn
þegar allt er orðið hljótt?
Fá að vera með um sinn
að djamma fram á nótt.
Mitt vandamál er á andlega sviðinu.
Hugsanirnar heimskar sem gínur á húsþökum.
Þú ættir að sjá í andlitið á liðinu

Mitt vandamál er á andlega sviðinu.
Hugsanirnar heimskar sem gínur á húsþökum.
Þú ættir að sjá í andlitið á liðinu
er það sér við þessum vandræðum við bökum.
Þú varðst að ganga rekinn í kút
til þess að verða ei fyrir aðkasti mannanna.
Þó að þú lítir alls ekki út fyrir að lifa
eftir lögum þess bannaða.
Hvernig kemst ég inn
þegar allt er orðið hljótt?
Fá að vera með um sinn
að djamma fram á nótt.

Like us on Facebook.....
-> Loading Time :0.0078 sec