Fjólublátt flauel Lyrics & Tabs by Bubbi Morthens

Fjólublátt flauel

guitar chords lyrics

Bubbi Morthens

Album : Sögur af landiPlayStop

Það var einn morgun snemma sumars þegar sólin kíkti inn ég sat við gluggann með kaffið, var að horfa á himininn. Geislarnir tipluðu inn á hvítum fótum og földu brosin sín og fundu þig undir sænginni mjúku og opnuðu augu þín. Og það er gott að elska og það er gott að elska og það er gott að elska konu eins og þig. Þú býður mér blíðlega góðan dag og drekkur þitt kínverska te dimmblá fegurð augna þinna er það eina sem ég sé. Það er ljúft að horfa á þig og finna friðinn sem leggur frá þér þú ert falleg svona nývöknuð, þú ert allt sem ég óska mér. Og nú er ég orðinn faðir og finn hversu ljúft það er að fá furðu smáar hendur að morgni dags um háls á mér. Og gagnvart konu eins og þér er ástin mitt eina svar og ef það er líf eftir þetta líf þá mun ég elska þig líka þar.


Like us on Facebook.....
-> Loading Time :0.0078 sec