Nón Lyrics & Tabs by Solstafir

Nón

guitar chords lyrics

Solstafir

Album : Ótta black metal PlayStop

Sólbrot yfir nátthaga,
Læðist sifji nætur, stelur minni sálarró.
Þögnin þung sem blóð,

Brestur tónn eitt sinn fagur.
Kyrrð í vetrarríki.
Myrkrið mýkir glætan gul,
Gæðir kuldann hlýjum yl er nótt fellur á ný,
Nóttin þung sem blý.
Fönnin kæfir sumarilm.
Vetur tekur yfir.
Vonin kom með vorinu
En lifði ekki lengi hér á góumánuðum,
dó í ánauðum,
Stoltið drap þá veiku von.
Kyrrð í vetrarríki.

dó í ánauðum,
Stoltið drap þá veiku von.
Kyrrð í vetrarríki.
Rökkvar yfir lífi okkar,
Úr fjarlægðinni fögur er ástin forboðin,
Hjartans vorboðinn,
Nú grafin er í fönn.
Vetur tekur yfir.
Mjúkir tónar mosans sofa í djúpu vetrarhúmi,
Dúnmjúk skýin étin upp af nöprum grámanum.
Sefur illum svefni, í hvaða litum dreymir þig?
Læðist litlaus nóttin kannski inn í huga þinn?
Ekki fann ég guð í gömlu bókaskruddunum,
Né hamingju í flösku, ekkert lýsti mína leið.
Drápu niður fæti illar draumfarir.
Samviskan nagar sálarhræ í illri neyð.

Like us on Facebook.....
-> Loading Time :0.0079 sec