Fannfergi hugans Lyrics & Tabs by Sálin Hans Jóns Míns

Fannfergi hugans

guitar chords lyrics

Sálin Hans Jóns Míns

Album : Compilation icelandic PlayStop

Hún er silki og stál.
Hún er stórsjór og bál.
Hún er allt mitt í hendi. Hún er hjarta míns mál.

Þegar heimur og drótt
höfðu loks um sig hljótt,
í fannfergi hugans ég fann han'í nótt.
Það var dimmt, það var dögg,
og í dreyranum lögg.
En ég fann hvernig hjartað sló högg eftir högg.
Þar sem áður var tóm,
eru nú aðeins blóm.
Í kuldanum ástin, hún kvað upp sinn dóm.
Það er ólýsanlegt,
já og alls engu líkt
þá sjaldan menn komast í tæri við slíkt.

Það er ólýsanlegt,
já og alls engu líkt
þá sjaldan menn komast í tæri við slíkt.
Hversu öflug hún er
hversu hreint ótrúleg.
Hvað hún örvar og sefar í senn, trúðu mér!
Það var hvasst úfinn sær.
Það var nýfallinn snær.
Þó var innra með mér aðeins andvari vær.
Já, ég vissi sem var
og ég skynjaði þar
í mjöllinni hitann sem með sér hún bar.
Það er ólýsanlegt,
já og alls engu líkt
þá sjaldan menn komast í tæri við slíkt.
Hversu öflug hún er,
hversu hreint ótrúleg,
hvað hún örvar og sefar í senn, trúðu mér.
Dag eftir dag eftir dag
eru óteljandi sálir sárar víst.
Dag eftir dag eftir dag
hverfur sól en síðan styttir upp.
Styttir upp á ný.
— Sóló —
Það er ólýsanlegt,
já og alls engu líkt
þá sjaldan menn komast í tæri við slíkt.
Hversu öflug hún er.
Hversu hreint ótrúleg.
Hvað hún örvar og sefar í senn, trúðu mér.
Nú er dagur á ný,
en í kvöld aftur sný,
ég til fundar við þig þar í rökkrinu því.
Þegar heimur og drótt,
höfðu loks um sig hljótt.
Í fannfergi hugans ég fann þig í nótt.
Í fannfergi hugans ég fann þig í nótt.

Like us on Facebook.....
-> Loading Time :0.0082 sec