Stúlkurnar á Internetinu Lyrics & Tabs by Baggalútur

Stúlkurnar á Internetinu

guitar chords lyrics

Baggalútur

Album : Nýjasta NýttPlayStop

Þær búa alnetinu á innlyksa hver í sinni skrá. Þær eru fjarska fallegar fullkomnlega stafrænar og allir blíðu þeirra þrá. Ég stundum leggst í leit að þeim, læðupokast höndum tveim. Og ef ég ramba á rétta slóð og ef hún reynist vera góð þá jafnvel sæki ég þær heim. Stúlkurnar á Internetinu þær ylja okkur í mesta hretinu. Þær eru afskaplega sællegar að sjá Þær liggja bara heima og hugga sig og hafa alltaf tíma fyrir mig. Og segja ekki nokkrum manni frá. Allt þeirra líf er tölvutækt, tilveran öll í netið flækt. Og við sinn kísilbætta barm þær bera hljóðan innri harm. Og gráti þær þá gjörist netið hægt. Stúlkurnar á Internetinu þær ylja okkur í mesta hretinu. Svo yndislega settlegar að sjá. En finnst þeim ekkert vont að vera þar? Að vera svona opinberaðar? Skiptir máli hver er að horfa á? Píurnar á Internetinu þær ylja okkur í mesta hretinu Svo dásamlega saklausar að sjá. Þær höfðu sjálfsagt eitthvað annað plan en enduðu í Langtíburtistan, yfirgefnar á ókunnugum skjá. Skvísurnar á Internetinu þær ylja okkur í mesta hretinu. Svo fjarskalega fullnægðar að sjá. En líf þeirra er ósköp berrassað og líklega er ekkert verra en að hafa gjörvalt mannkyn gónandi sig á.


Like us on Facebook.....
-> Loading Time :0.0111 sec