Ljósglæta Lyrics & Tabs by Rökkurró

Ljósglæta

guitar chords lyrics

Rökkurró

Album : Það kólnar í kvöld... icelantic PlayStop

Í svarthvítri veröld
þar sem ógnin sverfur að sálunum
og sólin nær ekki í gegn.

Ég kveiki ljós
sem að leiðir mig
og gefur mér kjark.
En myrkrið er svartast
í húsasundum höfuðs míns
þar sem hugsanir hræða mig.
Ég bægi þeim frá
og held þéttingsfast
í ljósglætuna.
En þar sem rökkrið nær ekki
er hjarta mitt vakandi
og glóir eitt í grámanum.

En þar sem rökkrið nær ekki
er hjarta mitt vakandi
og glóir eitt í grámanum.
Sjáðu stjörnurnar
þær fjara út
úr augsýn okkar.

Like us on Facebook.....
-> Loading Time :0.0068 sec