Skynjun Lyrics & Tabs by Nýdönsk

Skynjun

guitar chords lyrics

Nýdönsk

Album : RegnbogalandPlayStop

(Eyrað)
Hölluðum hurðum er best að loka.
Þó veggirnir hafi ekki eyru

Eru eyru á bak við.
Þau heyra þig hvísla og klappa af kæti.
Greina jafnvel aldur þinn af hljómfalli.
(Augað)
Þú getur heyrt fyrir horn
í því sem er fjarri
Hlustað á tónlist og samtöl við aðra.
En ég get séð hendur sem handleika fiðlur
Og hljómsveitarstjórann sem telur í.
Halla undir flatt
Horfi lóðréttum augum á
Fingurna strjúkast við streng.

Halla undir flatt
Horfi lóðréttum augum á
Fingurna strjúkast við streng.
Tónarnir nálgast
Hlustirnar taka við.
Skynjunin er ekki lengur mín.
(Eyrað)
Hlusta á fiðlurnar byrja með léttum dansi.
Litla tromma tifar, túbur leysa vind
Þrumandi bassar og tónlistin hækkar
Breytist í orrustugný hámarkinu er náð.
Hljómurinn fellur,
Hlusta láréttum eyrum á
Fingurna sleppa sínum streng.
Tónarnir deyja,
Sjónin tekur við.
Skynjunin er ekki lengur mín.

Like us on Facebook.....
-> Loading Time :0.0084 sec