Orð Að Eigin Vali Lyrics & Tabs by Árstíðir

Orð Að Eigin Vali

guitar chords lyrics

Árstíðir

Album : Svefns Og Vöku Skil icelandic PlayStop

Bjartur er bjarminn
sem brosir við nú
Hjartað heltekur

hugurinn dreymir
Brátt biðin fer
gæti banvæn orðið sú
Sú mikla mæða
sem maðurinn leynir
Lævís oft læddist
svo lítið bæri á
Ætti´að forðast þá freistni
sem fær á hann sótt
Svikult var svarið
það hann ei einn sá
Eftir orðin honum

Svikult var svarið
það hann ei einn sá
Eftir orðin honum
verður ekki rótt
Þetta eitt, hann þráir svo heitt
Skugga dregur fyrri tíðar
Þessi orð að eigin vali
hafa ei heyrst síðar
Ólgast nú óttinn
því óleystur er
Til þess setur traust
að allt tíminn kali
Þá brosið breitt
létt og glaður ber
Eftir orð
að eigin vali
Þetta eitt, hann þráir svo heitt
Skugga dregur fyrri tíðar
Þessi orð að eigin vali
hafa ei heyrst síðar

Like us on Facebook.....
-> Loading Time :0.0073 sec